31. janúar 2011
Video & tölvulausn ehf hættir að þjónusta fyrirtæki og skóla með kennsluvídeó. | |||
| Það eru 11 ár síðan fyrirtækið var stofnað til að hjálpa fólki á vinnumarkaði að þróa breytingar í gegnum starfsþjálfun með hjálp kennslumyndbanda. Video & tölvulausn var dreifinagaraðili á Íslandi fyrir fremstu framleiðendur heims Charthóse Learning og Video Arts en áður hafði fyrirtækið Vitund hf verið dreifingaraðili fyrir Video Arts í Bretlandi. | |||
| Gerðu svo vel að snúa þér að framleiðendum kennsluefnis beint. | |||
| Video Arts | |||
| Charthouse Learning |
30. mars 2009
Feed forward eða Mata áfram | ||||
„Þjálfaðu þig fyrir framtíðina.“ | ||||
Nýtt frá Charthouse Learning | Hjálpar farsælum leiðtogum að ná jákvæðum og varanlegum breytingum í eigin hegðun til bóta fyrir þá sjálfa og samstarfsmenn | |||
Markmið | · Verða skilvirkari leiðtogi og betri í að hlusta á aðra. · Skapa framtíðina sem þú óskar eftir fremur en að hjakka í fyrri mistökum. · Bæta lífið í vinnunni . . . og heima. | |||
Um Marchall | Marchall Goldsmith hefur skrifað margar bækur m.a. bókina, What Got You Here Won't Get You There: How Successful People Become Even More Successful. Sjá ritdóm Toms Carpenters um hana á vefnum: Umsögn | |||
Lesa meira | Á vef Charthouse Learning | |||
26. ágúst 2008
30 leiðir til að skapa meiri tíma | ||||
„Vertu miskunnarlaus gagnvart tímanum en kurteis við fólk.“ | ||||
Nýtt frá Video Arts | Flestir kunna að halda að þeir séu skilvirkir. En ef maður kann ekki aðferðir til að stjórna tíma sínum er ólíklegt að maður verði að öllu leyti skilvirkur. Léleg tímastjórnun getur líka haft keðjuverkandi áhrif á vinnufélaga eða teymi manns. | |||
Markmið | Markmiðið með dagskránni er að sýna einstaklingum hvenær og hvar tímastjórnun er forgangmál í daglegum störfum þeirra og hvernig þeir geta lært að stjórna tíma sínum á skilvirkari hátt. | |||
Um innihaldið | 30 aðferðir til að skapa meiri tíma sýnir að hægt er að þjálfa alla starfsmenn innan fyrirtækisins í tímastjórnun. Kennsluvídeóið notar eftirminnilega öflugar persónur við fjölmargar ólíkar aðstæður til að varpa ljósi á vandamál við tímastjórnun – sýnir bæði hvernig á að gera hlutina rétt og rangt. | |||
| Gerðu svo vel að hafa samband við Videeo Arts til að panta efni eða fá meiri upplýsingar. |
22. nóvember 2007
Temdu þér ákveðni | ||||
Að læra að vera ákveðin(n) | ||||
Nýtt frá Video Arts | Kennslupakki sem inniheldur vídeó á DVD og stuðningsefni tilbúið til notkunar í starfsþjálfun á námskeiðum eða í sjálfsnámi. Þú velur hvort þú vilt hafa efnið í íslenskri þýðingu, sérmerkt fyrirtækinu þínu eða allt á ensku. | |||
Markmið | Að sýna starfsfólki hvað sé átt við með ákveðni og hvað ekki og einnig, hvernig og hvenær sé viðeigandi að vera ákveðin(n). | |||
Um innihaldið | Ákveðni merkir að segja hvað maður vilji, þurfi, finni fyrir eða trúi á með beinum hætti, heiðarlega og viðeigandi en virða um leið rétt þeirra sem við ræðum við – komum fram við okkur sjálf og vinnufélaga okkar af fagmennsku sem fullorðið fólk. Það er jafnvægið milli eftirgefni og hvatvísi. | |||
| Gerðu svo vel að hafa samband við Videeo Arts til að panta efni eða fá meiri upplýsingar. |
10. september 2007
Komdu því áleiðis | ||||
Færni stjórnenda í að þjálfa | ||||
| Út er komið nýtt kennsluefni hjá Video Arts. Markmiðið er að veita stjórnendum nauðsynlega þjálfunarfærni í að leiðbeina og uppörva starfsmenn til árangursríkari frammistöðu. | Þjálfun á vinnustað er lífsnauðsynleg, en oft vanrækt | |||
| Samtímis því að millistjórnendum er í auknum mæli gert að bera ábyrgð á þjálfun eru í reynd fáir þjálfaðir til þess. | Armando Iannucci (hann hefur tvisvar fengið Sony Radio Awards og þrisvar British Comedy Awards) ritar handrit með skýrum skilaboðum, kímni og hagnýtum dæmum um hvernig á að þjálfa rétt (og rangt). Það sýnir á hvern hátt árangursrík þjálfun getur stuðlað að þróun hvar sem er og hve hún er líka persónulega gefandi fyrir þann sem þjálfar. | |||
| Vídeó á DVD með íslenskum texta og stuðningsefni á íslensku. | Gerðu svo vel að hafa samband við Videeo Arts til að panta efni eða fá meiri upplýsingar. | |||
27. mars 2007
Þjálfunin dugar lengur | |||||||||||||||||||||||||||||||
Þjálfunin dugar lengur með þjálfunarnámskeiðum okkar. Kjarninn í miðlun þekkingar og fræðslu er vídeó með stuðningsefni á rafrænu formi, kennsluleiðbeiningar, glærur og vinnublöð. Áhersla er á að virkja þátttakendur í að þjálfa sig í hópi eða sjálfsnámi. | |||||||||||||||||||||||||||||||
| Kennslupakkar með vídeó á DVD með íslenskum texta og fylgir með diskur með rafrænu stuðningsefni fyrir námskeið og sjálfsnám. Í tilefni útgáfunnar bjóðum við tilboð á leigu 2 fyrir eitt. Þú borgar í leigu 46 þús. kr. + VSK og átt kost á að fá 2 námskeið til afnota í 3 daga hvort. Kaupverð á kennslupakka er 140 þús. kr. + VSK (Ath verð hjá Video Arts er 1.299 + VSK). Gert er ráð fyrir að útlán geti farið fram út allan maímánuð. | Þú getur valið úr nær 100 titlum frá Video Arts með íslenskum texta og íslensku stuðningsefni með vídeó á DVD. Afgreiðslufrestur er að jafnaði 2 vikur og að hámarki 2-3 mánuðir.Þú færð kennsluefnið merkt fyrirtækinu þínu. Þegar vídeóið er notað í kennslu mun nafnið birtast neðst á skjánum. Verðið hjá okkur er hið sama og í Bretlandi. Sjá meira um nýjustu námskeið frá Video Arts | ||||||||||||||||||||||||||||||
2 fyrir 1 | Tilboðið er í gildi til maíloka | Ný og bætt þjónusta við kaupendur kennslupakka | |||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
| ![]() | Nýir titalr
| ||||||||||||||||||||||||||||
| hafa samband við Videeo Arts | Sérmerkt fyrirtækinu | ||||||||||||||||||||||||||||||
| Kennslupakki til leigu með þeim skilmálum að þú borgar bara fyrir leigu í eitt skipti og færð frítt í annað sinn: Tilboðið gildir út maí. | |||||||||||||||||||||||||||||||
Leigu þarf að staðfesta fyrir 1. maí 2007 | Sérmerkt efni á DVD þarf að panta með minnst 2 vikna fyrirvara | ||||||||||||||||||||||||||||||
19. október 2006
Að búa til hið fullkomna teymi | ||||||||||||||
| Teymishlutverk Belbins, kenning og framkvæmd | |||||||||||||
![]() | Þetta sígilda og vinsæla námskeið er komið út í íslenskri þýðingu. Vídeó á DVD með íslenskum texta og rafrænt stuðningsefni fyrir nemendur á íslensku. | |||||||||||||
| Þeir sem vinna sig í gegnum efni þessa námskeiðs munu | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Í tilefni útgáfunnar bjóðum við 20% afslátt af þessu nýja námskeiði til 10. nóvember 2006. | ||||||||||||||
Með því að skila inn samnefndu myndbandi fá viðskiptavinir þennan nýja námskeiðspakka keyptan með 30% afslætti. | ||||||||||||||
| hafa samband við Videeo Arts | ||||||||||||||
10. september 2006
VIRTUAL LEADER | |||
| Leiðtogaþjálfun í samvinnu við SimuLearn | |||
| Meira um Virtual Leader og framleiðandann: Simulearn | |||
| Leiðtogi leiðir hóp fólks í að framkvæma rétt verk á hagkvæman hátt | |||
| Mælikvarði á framfarir leiðtogans er hversu vel honum tekst að virkja hópinn sinn til þess að taka réttar ákvarðanir (og koma í veg fyrir rangar ákvarðanir). | |||
| Virtual Leader fékk árið 2004 viðurkenningu tímaritsins T+D sem gefið er út af ASTD, samtökum fagfólks í fræðslu og mannauðsþróun. ASTD Award | |||
| Þjálfunarnámskeiðið var einnig útnefnt Best Online Training Product of the Year 2003 af Training Media Review | |||
| Þótt verðlaun og viðurkenningar færustu og virtustu fagmanna séu afar mikilvæg er ánægja og árangur notenda ekki síður mikilvæg. Þátttakendur segja að þjálfunin sé krefjandi og mikil áskorun en veiti þeim upplifun á við margra ára reynslu. Nemendum gefst kostur á að þjálfa mismunadni stjórnunarstíl og prófa án áhættu hvaða nálgun henti þeim við mismunandi aðstæður. Kjarninn í þjálfuninni er að þjálfa leiðtogann í að beita áhrifavaldi sínu, stjórna spennu og laða fram hugmyndir í samstilltu og hárfínu jafnvægi. Sjá meira um samspil valds, spennu og hugmynda til árangurs í tímaritinu T+D í mars 2003. Aðferðin er nefnd Nýr kjarni þar sem “þrennt yfir í eitt” vísar til stjórnunar framangreindra þriggja þátta til sem bestar niðurstöðu. Lesa meira | |||
| Beiðni um meiri upplýsingar Senda tölvupóst | |||
3. júlí 2006
Menning Fisks! | |||
| Nýr kennslupakki, FISH! Culture™ frá ChartHouse | |||
| Smelltu á krækjuna til að kynna þér innihaldið betur: Menning Fisks! | |||
| Vilt þú byggja upp jákvæðan vinnustað með reglulegum samtölum við starfsfólkið? | |||
| Þú getur það! | |||
| Jákvæð reynsla notenda hefur hvatt höfundana til að þróa það sem var „bara vídeó“ yfir á annað plan. | |||
| Meira um efnið á vefsíðu framleiðandans: FISH! Culture. | |||
| Kennslupakkinn nýji er kominn í dreifingu og þeir viðskiptavinir okkar, sem eiga kennslupakkann Fish! fyrir og óska eftir að nota Fish! Culture í innri þróun og fræðslu, eiga kost á uppfærslu á sérstökum kjörum. Gerðu svo vel að kynna þér skilmála með því að hafa samband við Video & tölvulausn ehf. | |||
20. febrúar 2006
Nýr samstarfsaðili | ||||
EDVANTAGE GROUP | ||||
Heildarlausn í starfsþjálfun fyrir þig sem vilt sjá betri árangur í mannauðsstjórnun og starfsþjálfun sem fyrst | ||||
| Ég hef þá ánægju að kynna nýjan samstarfsaðila okkar, Edvantage Group, sem sérhæfir sig í heildarlausnum í starfsþjálfun gegnum námsgátt. Edvantage Group hóf starfsemi 1999 eða sama ár og Video & tölvulausn ehf sem þjónustar íslenska fræðsluaðila og skóla með kennsluefni, hugbúnað, rafrænt efni og námskeið. Edvantage Group starfar sem óháður aðili við að þjónusta stórfyrirtæki með námsefni og e-nám. Starfsmenn Edvantage Group eru 22 í Bretlandi, Niðurlöndum og Norðurlöndunum. Viðskiptavinir eru þekkt stórfyrirtæki í Norður-Evrópu m.a. Ericson, Norsk Hydro, DNB (De Netherlandsche Bank), SE banken o.fl. Unnið er í nánum tengslum við mannauðsstjórnendur hjá viðskiptavinum. Takmarkið er að starfsþjálfun og starfsþróun í þínu fyrirtæki fái ábatann af því besta fáanlega í e-námi. Hver viðskiptavinur fær þjónustu við sitt hæfi allt frá tímabundinni ráðgjöf við verkefni á sviði e-náms til hýsingar á heildarþjónustu og fullrar ábyrgðar á skilvirkri starfsþjálfun. | ||||
| Nýverið var undirritaður sérstakur samningur Edvantage group við SE Banken í Svíþjóð um leiðtogasamfélag SEB´s Executive Management Program í samvinnu við The Wallenberg Institute. Námskeiðið sem byrjar nú í febrúar 2006 er haldið í annað sinn á vegum Edvantage group. Í fréttatilkynningu á vef þeirra segir að markmið námskeiðsins sé að þróa sem hæfasta framtíðarleiðtoga SEB. Lesa meira | ||||
| Beiðni um meiri upplýsingar senda tölvupóst | Videó og tölvulausn bætir við þjónustu sína með samstarfi við Edvantage group sem býður fjölbreytni og lausnir sem gera kleift að virkja símenntun í takt við stefnu yfirstjórnar fyrirtækis þíns. | |||
3. febrúar 2006
Nýtt Hegðunarviðtal | ![]() | |
| Út er kominn nýr kennslupakki frá Video Arts um að taka viðtal við umsækjendur um fyrri hegðun og komast hjá getgátum í mönnun. Ekki er að efa að mikill fengur er að þessu nýja kennsluefni sem tekur á einum viðkvæmasta þætti í starfi stjórnanda: AÐ RÁÐA RÉTTAN STARFSMANN hverju sinni. | ||
| hafa samband við Videeo Arts | ||
31. október 2005
Bókin FISKUR! | ||
![]() | Hjá bókaforlaginu Sölku er komin út bókin FISKUR! Þýðandi er Sigríður Á. Ásgrímsdóttir. Í bókinni er rakið hvernig lífsspeki fisksalanna í Pike Place Fish hjálpaði stjórnanda í fjármálageiranum að hvetja starfsfólk sitt og ná betri árangri. Bókin hefur selst í milljónum eintaka um heim allan og verið þýdd á 34 tungumál. | |
| Lesa_meira | ||