| |  | | Færni sem fyrirtæki sækjast mest eftir um þessar mundir. Með Virtual Leader færðu þjálfun sem jafnast á við margra ára reynslu í raunveruleikanum. Þú getur óhikað gert tilraunir með þinn stjórnunarstíl og prófað ólíkar lausnir. Þú getur líka rifjað upp og haldið þér í æfingu jafnhliða því sem þú lærir í lífsins skóla. Þú getur æft þig eins oft og þú þarft án áhættu. | Æfingin skapar meistarann, líka í leiðtogahlutverkinu. Það eru fáir fæddir leiðtogar en flestir geta þjálfað þá færni sem þarf til að vera góður leiðtogi. Í Virtual Leader ertu í skemmtilegu og krefjandi þjálfunarprógrammi. | | Áhersla er á þjálfun í beitingu færni þinnar og árangur þinn við að skila réttu verki (og hindra rangar ákvarðanir). Jafnframt er reynt að tryggja að fræðileg þekking þín sé fullnægjandi. | | Virtual Leader var valið besta vefnám ársins 2003 af Training Media Review og T+D magazine. Wall Street Journal og CNNF hafa gefið því góða dóma. | |  | | Leiðtogafærni krefst réttrar tímasetningar og innsæis. Hún snýst um „hvenær“ og „hvernig“ ekki síður en „hvað“. Jafnvægislist sem þarf samvinnu ekki regluverk. | |
| |  | | Markmiðið með hugbúnaðarlausnum frá SumTotal er að ná betri gæðum og meiri framleiðni hjá starfsfólki fræðsludeilda við námsefnisgerð og betri árangri í námi með bættri umsjón og eftirliti og markvissari áætlanagerð og námsmati. | Hugbúnaðurinn uppfyllir kröfur hins nýja opna staðals fyrir e-nám, SCORM, og getur gengið með LMS kerfum sem uppfylla kröfur þess staðals. | ToolBook hönnunartól eru fáanleg í tveimur útfærslum, Instructor og Assistant. | | Það sem aðskilur Assistant og Instructor eru ólíkir hönnunar- og forritunarmöguleikar sem endurspeglar verðmunin sem er á þessum tveimur höfundatólum. | | Instructor hentar vel notendum með reynslu af forritun. | | ToolBook Assistant er góður kostur fyrir höfunda kennsluefnis sem vilja einbeita sér að því mikilvægasta sem er að hanna gott kennsluefni og þurfa ekki að hafa áhyggjur af tækninni. | | Innihaldið er í beinu samhengi við rekstur og markmið fyrirtækisins. Auðvelt er að uppfæra og aðlaga efnið að breytingum. | |